Skil eða skipti á vöru
Við viljum að þú sért ánægð/ur með kaupin þín hjá HYBRD.
Skil á vörum sem keyptar eru í netverslun
Við kaup í netverslun HYBRD hefur viðskiptavinur 14 daga frá því að vara er afhent til að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu.
Tilkynna úrf HYBRD um skil innan 14 daga frá afhendingu vörunnar.
Vara sem er skilað úrf að vera:
- ónotuð og óskemmd
- hrein og í söluhæfu ástandi
- með upprunalegum merkimiðum
- í upprunalegum umbúðum eftir því sem við á
Viðskiptavinur má að sjálfsögðu máta flík á sama hátt og hægt væri að gera í verslun.
Þegar við höfum móttekið vöruna og staðfest að hún uppfylli skilyrði fyrir skilum er kaupverð endurgreitt með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað sé sérstaklega samþykkt.
HYBRD getur haldið endurgreiðslu þar til varan hefur borist til okkar eða viðskiptavinur hefur sýnt fram á að hún hafi verið send til baka.
Sendingarkostnaður vegna skila
Viðskiptavinur greiðir kostnað við að senda ógallaða vöru til baka til HYBRD þegar fallið er frá kaupum.
Ef greitt var fyrir hefðbundna sendingu við upphafleg kaup er sá sendingarkostnaður endurgreiddur samhliða kaupverði vörunnar. Ef valinn var dýrari sendingarmáti en ódýrasti afhendingarmáti sem HYBRD bauð er aðeins endurgreitt sem nemur kostnaði ódýrasta afhendingarmátans.
Skipti á stærð eða vöru
Ef óskað er eftir að skipta vöru í aðra stærð eða aðra vöru skal hafa samband við okkur.
Viðskiptavinur greiðir almennt sendingarkostnað vegna skiptanna, nema um galla eða ranga afhendingu sé að ræða.
Útsöluvörur og vörur á afslætti
Vörur sem keyptar eru á útsölu eða afslætti í netverslun falla undir lögbundinn 14 daga rétt neytenda til að falla frá fjarsölusamningi, eftir því sem lög um neytendasamninga eiga við.
Aðrar reglur um skipti eða skil umfram lögbundinn rétt geta verið takmarkaðar fyrir útsöluvörur.
Gallaðar eða rangar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng vara hefur verið send skal hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er á hybrd@hybrd.is.
HYBRD ber kostnað vegna endursendingar þegar um gallaða eða rangt afhenta vöru er að ræða.
Hvernig skila ég vöru?
Sendu okkur tölvupóst á hybrd@hybrd.is með:
- nafni
- pöntunarnúmeri
- upplýsingum um hvaða vöru þú vilt skila eða skipta
Við sendum þér þá upplýsingar um næstu skref.
Vörur skulu sendar til:
HYBRD
Borgarflöt 9
550 Sauðárkrókur
Vinsamlegast geymið kvittun eða sendingarnúmer þar til staðfest hefur verið að varan hafi borist okkur.