Frí sending yfir 16.000 kr.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 16.000 kr.

Sendum um land allt með Póstinum

Karfan þín

Karfan þín er tóm

Ekki viss hvar þú átt að byrja?
Skoðaðu vöruflokkana:

HYBRD forsíðumynd

Um Hybrd

Okkar saga

LÍFIÐ ER EKKI BARA EINN HLUTUR. OG ÞÚ EKKI HELDUR.

Við erum öll blanda af ólíkum hlutverkum. Við erum foreldrar, makar, vinir, frumkvöðlar og einstaklingar með okkar eigin markmið og drauma. Sumir dagar snúast um vinnu og fjölskyldu, aðrir um að mæta á æfingu, ögra sjálfum sér og verða aðeins sterkari en í gær. Við trúum því að þú þurfir ekki að velja á milli þessara hlutverka.

Þetta er hugmyndin á bak við HYBRD.

Íslenskt vörumerki fyrir fólk á hreyfingu — í ræktinni, í vinnunni og í lífinu sjálfu.

HYBRD íþróttafólk

Hugmyndin

ÞAÐ BESTA Á EINUM STAÐ

Hugmyndin að HYBRD kviknaði þegar einn stofnenda okkar var orðinn þreyttur á að þurfa að versla á mörgum mismunandi erlendum vefsíðum til að finna allan þann búnað sem hann þurfti fyrir æfingar.

Ein síða var með bestu ólarnar, önnur með lyftingabeltin og sú þriðja með töskurnar. Til að fá allt það besta þurfti að panta frá mörgum stöðum, greiða háan sendingarkostnað og oft bíða lengi eftir vörunum.

Okkur fannst vanta stað þar sem hægt væri að finna allt það besta undir einu þaki.

Þannig varð HYBRD til.

Við lögðum af stað með það markmið að sameina vandaðan æfingafatnað og búnað á einum stað — vörur sem við myndum sjálf vilja nota og gætum staðið á bak við.

Í dag hefur hugmyndin þróast enn frekar. Við viljum ekki aðeins bjóða vörur fyrir erfiðar æfingar, heldur fyrir fólk sem lifir fjölbreyttu lífi, sinnir ólíkum hlutverkum og vill halda áfram að hreyfa sig og ná sínum markmiðum.

HYBRD – það besta fyrir allar hliðar lífsins.

HYBRD = Hybrid

HYBRD nafnið kemur frá orðinu Hybrid.

Upphaflega lýsti það íþróttamanni sem sameinar styrk og úthald — einstaklingi sem getur bæði lyft þungt og hlaupið langt.

En fyrir okkur hefur merkingin orðið stærri.

Við erum öll HYBRD á okkar hátt. Við sameinum ólík hlutverk, áskoranir og markmið í lífinu, án þess að þurfa að skilgreina okkur út frá einu þeirra.

GOTT AÐ VITA

HYBRD íþróttafólk

FYRIR ALLAR HLIÐAR LÍFSINS.