Skilmálar
Almennar upplýsingar
Hybrd Fitness ehf. 611222-0170
Kaupandi verður að vera orðinn fjárráða til þess að eiga viðskipti á vefsvæði Hybrd, Hybrd.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir gilda um viðskiptin lög um neytendakaup nr. 48/2003 en jafnframt ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016. Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu.
Trúnaður
Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð persónuupplýsinga við viðskiptin fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Persónulegar upplýsingar
Þegar þú pantar vöru í vefverslun Hybrd geymum við einungis þær upplýsingar sem þú skráir, eins og nafnið þitt, netfang, heimilisfang og síma. Með því að panta vöru og skrá upplýsingar þá heimilar þú slíka söfnun upplýsinga. Sama gildir ef þú skráir þig sem viðskiptavin.
Upplýsingar um kreditkortið þitt eru aðeins vistaðar á meðan viðskiptin fara fram og eru samþykkt í kerfinu. Valitor geymir kortaupplýsingar þínar í öruggum kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri.
Um leið og pöntunin er staðfest og þú færð staðfestinguna í hendur verður öllum upplýsingum um kortið eytt úr kerfinu. Kortaupplýsingar þínar eru öruggar á meðan ferlinu stendur. Hið sama gildir hvort sem þú ert skráður notandi eða ekki. Fyrir frekari upplýsingar um öruggi greiðslu þinnar vísum við á heimasíðu Valitor.
Lagaákvæði
Um skilmála þessa gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og lög um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt.
Eignarréttarfyrirvari
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.
Nánari upplýsingar
Ef þú þarft að koma einhverju til skila varðandi til dæmis galla í vöru eða fá frekari upplýsingar sendu þá endilega tölvupóst á hybrd@hybrd.is og við leysum vandamálin saman.